Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. mars 2021 13:20
Ívan Guðjón Baldursson
Hannes Þór svaraði skoti frá Gumma Ben á Twitter
Mynd: Getty Images
Hannes Þór Halldórsson stóð vaktina á milli stanganna hjá Íslandsmeisturum Vals er þeir slógu KR út í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins í ótrúlegum leik.

KR komst í þriggja marka forystu á Hlíðarenda en heimamenn náðu að koma til baka á lokakaflanum og knýja vítaspyrnukeppni.

Guðmundur Benediktsson var að fylgjast með leiknum og spurði fylgjendur sína á Twitter hvor markvörðurinn myndi hafa betur, Hannes Þór eða Beitir Ólafsson hjá KR.

Í vítakeppninni var svo skorað úr öllum spyrnunum nema einni og svaraði Gummi Ben sjálfum sér: „Nevermind, þeir verja ekki skot."

Eftir leik fór Hannes Þór á Twitter og sá færsluna hjá Gumma og svaraði honum.


Athugasemdir
banner
banner