Fotbolti.net
21.04.26 - 10:00
Kári Snorrason

Lið vikunnar í enska - City í bílstjórasætinu

Manchester City vann 2-1 sigur á Arsenal í stórleik umferðarinnar og getur City farið á topp deildarinnar ef liðið vinnur Burnley á morgun.

Troy Deeney sérfræðingur BBC er búinn að velja úrvalslið umferðarinnar.
<b>Markvörður: Bernd Leno (Fulham)</b> - Átti vörslu helgarinnar á lokamínútu leiksins gegn Brentford og hélt hreinu í 0-0 jafntefli.

Markvörður: Bernd Leno (Fulham) - Átti vörslu helgarinnar á lokamínútu leiksins gegn Brentford og hélt hreinu í 0-0 jafntefli.

Canon

Mynd: EPA

<b>Varnarmaður: Adrien Truffert (Bournemouth)</b> - Hefur farið undir radarinn en hefur leyst Milos Kerkez vel af hólmi. Frábær í 2-1 sigri á Newcastle og er lykilmaður í liði Bournemouth sem hefur ekki tapað deildarleik síðan í byrjun janúar.

Varnarmaður: Adrien Truffert (Bournemouth) - Hefur farið undir radarinn en hefur leyst Milos Kerkez vel af hólmi. Frábær í 2-1 sigri á Newcastle og er lykilmaður í liði Bournemouth sem hefur ekki tapað deildarleik síðan í byrjun janúar.

Canon

Mynd: EPA

<b>Varnarmaður: Virgil Van Dijk (Liverpool)</b> - Þegar þú skorar sigurmarkið á lokamínútum í Merseyside-slagnum þá áttu skilið að vera í liði umferðarinnar.

Varnarmaður: Virgil Van Dijk (Liverpool) - Þegar þú skorar sigurmarkið á lokamínútum í Merseyside-slagnum þá áttu skilið að vera í liði umferðarinnar.

Canon

Mynd: EPA

<b>Varnarmaður: Joachim Andersen (Fulham)</b> - Hélt Igor Thiago, heitasta framherja deildarinnar, í skefjum í 0-0 jafntefli gegn Brentford.

Varnarmaður: Joachim Andersen (Fulham) - Hélt Igor Thiago, heitasta framherja deildarinnar, í skefjum í 0-0 jafntefli gegn Brentford.

Canon

Mynd: EPA

<b>Varnarmaður: Nico O'Reilly (Manchester City)</b> - Hefur verið einn albesti leikmaður deildarinnar í vetur og stóð heldur betur undir nafni í stórleik umferðarinnar.

Varnarmaður: Nico O'Reilly (Manchester City) - Hefur verið einn albesti leikmaður deildarinnar í vetur og stóð heldur betur undir nafni í stórleik umferðarinnar.

Canon

Mynd: EPA

<b>Miðjumaður: Xavi Simons (Tottenham)</b> - Skoraði mark úr efstu hillu gegn Brighton en því miður fyrir Tottenham dugði það ekki til.

Miðjumaður: Xavi Simons (Tottenham) - Skoraði mark úr efstu hillu gegn Brighton en því miður fyrir Tottenham dugði það ekki til.

Canon

Mynd: EPA

<b>Miðjumaður: Bernardo Silva (Manchester City)</b> - Steig upp í stærsta leik tímabilsins og var besti maður vallarins. Verður mikil blóðtaka fyrir City að missa hann í sumar.

Miðjumaður: Bernardo Silva (Manchester City) - Steig upp í stærsta leik tímabilsins og var besti maður vallarins. Verður mikil blóðtaka fyrir City að missa hann í sumar.

Canon

Mynd: EPA

<b>Miðjumaður: Rayan Cherki (Manchester City)</b> - Skemmtilegasti leikmaður deildarinnar. Skoraði stórbrotið mark með töktum sem minntu mann á Lionel Messi.

Miðjumaður: Rayan Cherki (Manchester City) - Skemmtilegasti leikmaður deildarinnar. Skoraði stórbrotið mark með töktum sem minntu mann á Lionel Messi.

Canon

Mynd: EPA

<b>Miðjumaður: Morgan Gibbs-White (Nottingham Forest)</b> - Skoraði þrjú glæsileg mörk í endurkomusigri gegn Burnley. Hvar væri Tottenham hefðu þeir sótt hann?

Miðjumaður: Morgan Gibbs-White (Nottingham Forest) - Skoraði þrjú glæsileg mörk í endurkomusigri gegn Burnley. Hvar væri Tottenham hefðu þeir sótt hann?

Canon

Mynd: EPA

<b>Sóknarmaður: Ollie Watkins (Aston Villa)</b> - Skoraði tvö og lagði upp eitt í hádramatískum sigri Villa á Sunderland.

Sóknarmaður: Ollie Watkins (Aston Villa) - Skoraði tvö og lagði upp eitt í hádramatískum sigri Villa á Sunderland.

Canon

Mynd: EPA

<b>Sóknarmaður: Erling Haaland (Manchester City)</b> - Skoraði sigurmarkið gegn Arsenal og átti í harðri baráttu við Gabriel þar sem sá norski stóð uppi sem sigurvegari.

Sóknarmaður: Erling Haaland (Manchester City) - Skoraði sigurmarkið gegn Arsenal og átti í harðri baráttu við Gabriel þar sem sá norski stóð uppi sem sigurvegari.

Canon

Mynd: EPA

<b>Stjórinn: Pep Guardiola (Manchester City)</b> Skákaði lærisveininum í stórleik ársins og nú er titilbaráttan í höndum City.

Stjórinn: Pep Guardiola (Manchester City) Skákaði lærisveininum í stórleik ársins og nú er titilbaráttan í höndum City.

Canon

Mynd: EPA

Lið vikunnar í enska - City í bílstjórasætinu
Canon

Mynd: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.