Óli Palli: Hefði viljað vera með fleiri stig
Auglýsing

Óli Palli var ánægður með stigið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Palli var ánægður með stigið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Páll Snorrason, þjálfari Fjölnis, var ögn svekktur eftir jafntefli sinna manna gegn KR í dag.
<i>„Fyrstu viðbrögð eru þau að ég hefði viljað vinna leikinn en eftir fyrsta hálftímann hjá okkur verð ég að vera ánægður með að fá stig hérna í dag.\"</i> sagði Óli Palli eftir leik.

Fjölnismenn mættu ekki til leiks fyrsta hálftímann en eftir mark Arnórs Breka tóku þeir öll völd á vellinum.
„Ég í rauninni skil ekki hvernig við vorum ekki fjórum mörkum undir eftir hálftíma leik en svo skorum við þetta mark sem að virtist kveikja svolítið í okkur.\"
Fjölnismenn eru með sex stig eftir fimm umferðir og hefur liðið gert þrjú jafntefli. Óli Palli er ekki nógu sáttur með stigasöfnunina.
„Ég hefði viljað vera með fleiri stig á þessum tímapunkti en svona er fótboltinn. Við erum með sex stig og við verðum að vinna með það.\" sagði Óli Palli að lokum.
Nánar er rætt við Óla Palla í spilaranum að ofan.