21.05.21 - 10:15
Elvar Geir Magnússon
Hernandez og Berardi yfirgefa Leeds

Hernandez er 36 ára Spánverji sem hefur komið við sögu í fimmtán úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.

Mynd: Getty Images

Hernandez er 36 ára Spánverji sem hefur komið við sögu í fimmtán úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.

Mynd: Getty Images
Leeds United hefur verið eitt skemmtilegasta lið ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili og hlotið mikið lof.
Marcelo Bielsa og lærisveinar enda í efri hluta deildarinnar sem nýliðar í deildinni.
Tveir af þeim leikmönnum sem hjálpuðu liðinu að komast upp í deild þeirra bestu; Gaetano Berardi og Pablo Hernandez, eru að yfirgefa félagið en þetta var tilkynnt í morgun.
Báðir hafa þeir verið í litlu hlutverki á þessu tímabili. Berardi er 32 ára Svisslendingur sem aðeins hefur spilað einn leik í úrvalsdeildinni en Hernandez er 36 ára Spánverji sem hefur komið við sögu í fimmtán leikjum.

Í yfirlýsingu frá Leeds segir að báðir leikmenn hafi haft mikil áhrif á Elland Road og verði í sögubókum félagsins sem meðlimir í hópi þeirra sem komu Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir sextán ára fjarveru.
„Félagið getur ekki komið þakklætinu til þessara leikmanna í orð," segir í yfirlýsingunni.

Marcelo Bielsa sagði á fréttamannafundi í morgun að hann hefði viljað halda leikmönnunum í sínum hóp því þeir væru gríðarlegir fagmenn.

🎙️ Marcelo: "Two excellent professionals, great teammates, footballers who have been very influential and decisive." pic.twitter.com/3o09B8WVVz
— Leeds United (@LUFC) May 21, 2021
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |