Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. maí 2022 08:00
Victor Pálsson
Walcott horfir til Bandaríkjanna
Mynd: Getty Images

Theo Walcott, fyrrum landsliðsmaður Englands, er að skoða það að fara í bandarísku MLS-deildina í sumar.


Frá þessu greina ensk götublöð en Walcott hefur lítið fengið að spila fyrir Southampton á þessu tímabili.

Walcott byrjaði tímabilið sem hluti af hópnum en hans síðasti leikur kom gegn Tottenham í febrúar.

Walcott er orðinn 33 ára gamall og skrifaði undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt í maí í fyrra.

Los Angeles FC og New York City eru þau lið sem eru orðuð við Walcott sem er án marks í 12 leikjum á tímabilinu.


Athugasemdir
banner