Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 21. júlí 2021 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Southampton að krækja í Simeu frá Chelsea
Mynd: Getty Images
Dynel Simeu er að ganga í raðir Southampton á frjálsri sölu eftir að hafa hafnað samningstilboði frá Chelsea.

Simeu er runninn út á samningi og þarf Southampton því aðeins að greiða lága uppbótarupphæð til Chelsea.

Simeu er 19 ára gamall miðvörður sem þykir meðal efnilegri leikmanna í akademíu Chelsea og vakti hann athygli á sér með góðum frammistöðum í varaliðadeildinni á síðustu leiktíð.

Chelsea seldi Fikayo Tomori til AC Milan fyrr í sumar og Marc Guehi til Crystal Palace á dögunum. Félagið er með marga unga leikmenn á sínum snærum sem vilja ekki allir endurnýja samninga sína til að vera svo lánaðir út eða spila fyrir varaliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner