Sóknarmaðurinn Mauro Icardi hefur ýjað að því að framtíð sín sé í Mílanó en á samfélagsmiðlum birtir hann myndir frá byggingu á nýrri lúxus íbúð sinni í borginni.
Icardi var sagt í sumar að hann gæti yfirgefið Inter og fundið sér nýtt félag eftir að hafa fallið í ónáð á síðasta tímabili.
Það er þó ekki hægt að segja að það sé neitt fararsnið á Icardi.
Icardi var sagt í sumar að hann gæti yfirgefið Inter og fundið sér nýtt félag eftir að hafa fallið í ónáð á síðasta tímabili.
Það er þó ekki hægt að segja að það sé neitt fararsnið á Icardi.
Á Instagram má sjá hann með öryggishjálm að skoða íbúðina sem er að taka á sig mynd.
„Mitt nýja heimili er á leiðinni," skrifaði Icardi en hann hefur meðal annars verið orðaður við Juventus.
Ef Juventus selur Paulo Dybala er möguleiki á að Ítalíumeistararnir opni veskið fyrir Icardi, samkvæmt ítölskum fjölmiðlum.
Athugasemdir