Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 21. ágúst 2019 14:10
Magnús Már Einarsson
Kennie gisti á sjúkrahúsi eftir þungt högg - Ekki alvarleg meiðsli
Kennie Chopart.
Kennie Chopart.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kennie Chopart, hægri bakvörður KR, var borinn af velli í 1-0 sigri liðsins á Víkingi R. á mánudagskvöld. Kennie lenti í hörkusamstuði við Óttar Magnús Karlsson og fékk gula spjaldið áður en hann var borinn af velli.

Sjúkrabíll kom skömmu síðar á Meistaravelli að ná í Kennie og hann gisti nóttina eftir leik á sjúkrahúsi.

„Hann var mjög verkjaður af högginu sem hann fékk í síðuna og mjöðmina og því var hann á spítala yfir nóttina," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, við Fótbolta.net í dag.

„Hann var ennþá töluvert verkjaður í gær. Hann var skárri en ekki mikið. Læknar halda að þetta sé ekkert stórvægilegt annað en þetta högg sem hann fékk. Hann fór í myndatöku og það komu engir áverkar í ljós."

Gula spjaldið þýðir að Kennie verður í leikbanni þegar KR heimsækir KA á sunnudaginn.

Rúnar vonast til að Daninn jafni sig á högginu á næstu dögum og geti spilað með KR gegn ÍA í þarnæstu umferð sunnudaginn 1. september.
Athugasemdir
banner
banner
banner