Carlo Ancelotti, stjóri Everton, vonast til að Dominic Calvert-Lewin geti reynst jafn öflugur markaskorari fyrir sig og Filippo Inzaghi var hjá AC Milan á sínum tíma.
Calvert-Lewin skoraði þrennu í 5-2 sigri Everton á WBA um helgina en hann skoraði einnig gegn Tottenham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
„Ég var með stórkostlegan framherja í Inzaghi. Hann skoraði 300 mörk og 210 af þeim komu í fyrstu snertingu," sagði Ancelotti.
„Sóknarmaður þarf að vera einbeittur í vítateignum og ég tel að Calvert-Lewin skilji það vel því að hann hefur hraða og stökkkraft í teignum, hann hoppar mjög hátt."
„Hann hefur bætt sig mikið inn í vítateignum."
Athugasemdir