Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. september 2020 11:08
Magnús Már Einarsson
Atletico Madrid að landa Luis Suarez
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur náð samkomulagi við Luis Suarez, framherja Barcelona, um tveggja ára samning. Mundo Deportivo segir frá þessu í dag.

Hinn 33 ára gamli Suarez er ekki í áætlunum hjá Ronald Koeman, nýráðnum þjálfara Barcelona.

Suarez var nálægt því að ganga í raðir Juventus á dögunum en vegabréfsvandræði komu í veg fyrir það.

Nú bendir allt til þess að Suarez muni ganga í raðir Atletico Madrid.

Atletico Madrid þarf þó fyrst að losna við Diego Costa til að minnka launakostnað hjá sér.
Athugasemdir
banner
banner
banner