21.09.21 - 17:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifaði sig í sögubækurnar og dæmir í kvöld á Laugardalsvelli

Rebecca Welch.

Mynd: Getty Images

Rebecca Welch.

Mynd: Getty Images

Það er býsna öflugur dómari mættur á Laugardalsvöll til að dæma leik Íslands og Hollands í undankeppni HM.
Dómarinn kemur frá Englandi og heitir Rebecca Welch.
Welch náði á síðasta ári þeim merkilega áfanga að vera fyrsta konan til að dæma leik í deildarkeppni karla á Englandi, frá upphafi til enda.
Welch, sem er ekki enn orðin fertug, var með flautuna þegar Port Vale vann 2-0 sigur á Harrogate í ensku D-deildinni, og fékk hún mikið hrós fyrir frammistöðu sína.
Hún hefur þá meðal annars dæmt tvo úrslitaleiki í FA-bikar kvenna á Englandi, stórleiki í ensku úrvalsdeildinni og leiki í Meistaradeild kvenna.