Enski markvörðurinn Aaron Ramsdale segir að liðið þurfi að bæta leik sinn til að geta staðið í bestu liðunum en hann stóð í marki Arsenal sem tapaði fyrir Liverpool í gær, 4-0.
Ramsdale varði eins og berserkur í fyrri hálfleik en gat ekki komið í veg fyrir mark undir lok fyrri hálfleiks er Sadio Mane stangaði boltann í netið eftir aukaspyrnu Trent Alexander-Arnold.
Liverpool pressaði lið Arsenal hátt í síðari hálfleiknum og uppskar þrjú mörk til viðbótar.
„Þetta er einn erfiðasti völlurinn, ef ekki bara sá erfiðasti til að koma á. Við gerðum vel í 45 mínútur. Þeir voru kannski mun meira með boltann en við héldum þeim. Seinni hálfleikurinn sýndi að við þurfum að bæta okkur. Við gerum mistök en svona er lífið og fótboltinn. Okkur var refsað og það er það sem bestu liðin gera," sagði Ramsdale.
„Miðað við hvað þeir voru mikið með boltann þá vissi ég að ég yrði að eiga nokkrar vörslur. Mér fannst við gera vera að gera vel en fáum svo mark á okkur úr föstu leikatriði sem við höfum varist ágætlega til þessa. Við vorum svolítið barnalegir í byrjun síðari hálfleiks og þurfum að taka betri ákvarðanir á vellinum
„Ég er ekki búinn að sjá endursýninguna. Þetta var góður skalli í blautt grasið en jú ég tel mig geta gert betur. Ég er mjög kröfuharður á sjálfan mig og þarf að skoða þetta og mögulega bæta í framtíðinni," sagi hann í lokin.
Athugasemdir