Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 21. desember 2020 15:38
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: 433.is 
Oliver Heiðarsson á förum frá Þrótti
Lengjudeildin
Oliver Heiðarsson í leik með Þrótti í sumar. Hann er nú líklega á förum frá félaginu.
Oliver Heiðarsson í leik með Þrótti í sumar. Hann er nú líklega á förum frá félaginu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Oliver Heiðarsson er á förum frá Þrótti en þetta kemur fram í frétt 433.is í dag.

Oliver er sonur Heiðars Helgusonar fyrrverandi landsliðsmanns Íslands sem lék um áraraðir í Englandi. Hann er 19 ára gamall og skoraði fjögur mörk fyrir Þrótt í Lengjudeildinni í sumar í 19 leikjum.

Hann lék sinn fyrsta leik með liðinu í fyrrasumar þegar hann lék 3 leiki í deildinni.

433.is segir frá því að Oliver hafi nú nýtt sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við félagið og óljóst hvar hann spilar á næstu leiktíð. Samningurinn átti að renna út í lok næsta árs.
Athugasemdir
banner
banner