Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 22. janúar 2020 18:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron Elís skoraði í fyrsta leik með OB
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Elís Þrándarson lék sinn fyrsta leik fyrir OB í dag þegar hann spilaði seinni hálfleikinn í æfingaleik gegn Helsingborg í dag.

Mark Arons kom á 56. mínútu og var það þriðja mark OB í leiknum, leikurinn endaði 3-1. Teitur Magnússon lék síðustu 20 mínúturnar fyrir OB í leiknum.

Á heimasíðu OB stendur í leikskýrslu að Aron hafi skorað eftir undirbúning Sander Svendsen. Fyrsti leikur og fyrsta mark frá nýja leikmanninum númer nítján.


Daníel Hafsteinsson spilaði seinni hálfleikinn hjá Helsingborg í leiknum. Þá var Jón Guðni Fjóluson í byrjunarliði Krasnodar sem sigraði Dínamó Búkarest í æfingaleik, 1-2, í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner