Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, verður ekki rekinn frá félaginu þrátt fyrir 2-1 tap gegn Alcoyano í Konungsbikarnum í vikunni.
Það er Goal.com sem fullyrðir þær fregnir og þar kemur fram að Zidane sé enn með fullan stuðning frá stjórn félagsins.
Tapið gegn Alcoyano var ansi vandræðalegt en Real tapaði 2-1 í uppbótartíma gegn liði sem er í þriðju efstu deild.
Real hefur ekki unnið í síðustu þremur leikjum sínum og hefur spilamennskan á tímabilinu ekki verið sannfærandi.
Þrátt fyrir það er útlit fyrir að Zidane sé með stuðning en hann hefur unnið deildina tvisvar og Meistaradeildina þrisvar á Santiago Bernabeu.
Athugasemdir