Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 22. janúar 2022 15:46
Brynjar Ingi Erluson
Dróni flýgur yfir völl Brentford - Leikmenn sendir inn í klefa
Mynd: EPA
Leikmenn Brentford og Wolves voru sendir inn í klefa eftir að dróni flaug yfir völlinn eftir rúman hálftímaleik.

Staðan er markalaus í leiknum og var hart barist eða alveg fram að 32. mínútu.

Þá birtist dróni, sem var ekki á vegum félagana eða úrvalsdeildarinnar og var því ákveðið að stöðva leikinn tímabundið og leikmenn beggja liða sendir inn í klefa.

Þetta gerðist fyrir 12 mínútum síðan og uppfærði Brentford stöðuna fyrir tveimur mínútum og sagði að engar nýjar upplýsingar væri að fá.




Athugasemdir
banner
banner
banner