Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 22. febrúar 2021 23:17
Brynjar Ingi Erluson
Veltman: Vorum rændir sigrinum
Joel Veltman skorar markið gegn Palace
Joel Veltman skorar markið gegn Palace
Mynd: Getty Images
Joel Veltman, leikmaður Brighton í ensku úrvalsdeildinni, var afar svekktur eftir 2-1 tapið gegn Crystal Palace í kvöld.

Christian Benteke skoraði sigurmark Palace á fimmtu mínútu í uppbótartíma síðari hálfleiks og tryggði þar með Palace sigurinn.

Veltman gerði jöfnunarmark Brighton í leiknum. Fyrsta mark hans fyrir Brighton frá því hann kom frá Ajax.

„Fyrri hálfleikurinn var ekki okkar besti leikur. Markið þeirra kom upp úr engu og við áttum skilið að vinna. Mér líður eins og við höfum verið rændir sigrinum," sagði Veltman.

„Ég heyrði af einhverjum tölum úr leiknum. Ótrúlegt alveg hreint og þeir komust upp um þetta. Við kláruðum ekki færin og þeir fengu varla eitt dauðafæri og Benteke skoraði samt. Við verðum að skora meira."

„Við erum í hættusvæði útaf þessum úrslitum. Við vildum vinna og við munum reyna aftur gegn WBA,"
sagði Veltman í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner