Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. mars 2023 19:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo enn á leið í sögubækurnar - Verður einn leikjahæstur
Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo leikmaður Al Nassr í Sádí Arabíu er í landsliðshópi Portúgal sem mætir Liechtenstein og Luxemborg í riðli Íslands í undankeppni EM 2024 næstu daga.


Hann er markahæsti landsliðsmaður í sögunni með 111 mörk. Þá er hann einnig leikjahæsti landsliðsmaður í sögunni ásamt Bader Al-Mutawa landsliðsmanni Kúveit. Þeir hafa leikið 196 leiki.

Það er nokkuð ljóst að Ronaldo muni slá það met á næstu dögum.

„Met eru mín hvatning. Ég vil verða leikjahæstur í sögunni. Ég yrði stoltur af því. Það hættir ekki þar, ég vil enn vera hluti af landsliðinu oft," sagði Ronaldo.


Athugasemdir
banner
banner