Stórleikur Vals gegn Víkingi R. hefst innan skamms og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Íslandsmeistarar Víkings hafa ekki farið vel af stað í sumar en geta jafnað Val á stigum með sigri hér í dag.
Valur þarf sigur til að halda í við toppbaráttuna þar sem liðið er fimm stigum eftir toppliði Breiðabliks sem stendur.
Leikið er á Origo-vellinum á Hlíðarenda og er hægt að fylgjast með textalýsingu hér.
Valur gerir tvær breytingar eftir naumt tap gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Heiðar Ægisson og Sigurður Egill Lárusson koma inn í liðið fyrir Hauk Pál Sigurðsson og Guðmund Andra Tryggvason.
Kristall Máni Ingason er í leikbanni hjá Víkingum sem gera einnig tvær breytingar eftir þriggja marka tap gegn Blikum í síðustu umferð.
Viktor Örlygur Andrason og Ari Sigurpálsson koma inn í liðið fyrir Kristal Mána og Oliver Ekroth.
Byrjunarlið Vals:
1. Guy Smit
2. Birkir Már Sævarsson
3. Jesper Juelsgård
4. Heiðar Ægisson
5. Birkir Heimisson
6. Sebastian Starke Hedlund
11. Sigurður Egill Lárusson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (Fyrirliði)
19. Orri Hrafn Kristjánsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
Byrjunarlið Víkings R:
1. Ingvar Jónsson
3. Logi Tómasson
5. Kyle Douglas McLagan
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson
10. Pablo Punyed
17. Ari Sigurpálsson
20. Júlíus Magnússon (Fyrirliði)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |