Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. maí 2022 20:14
Brynjar Ingi Erluson
Fréttamaður Sky pirraður á öryggisverði Ten Hag: Ekki ýta mér, þú ert í sjónvarpinu!
Gary Cotterill
Gary Cotterill
Mynd: Fótbolti.net
Gary Cotterill, fréttamaður á Sky Sports, heldur áfram að eltast við hollenska stjórann Erik ten Hag og hefur gert síðan hann var ráðinn stjóri Manchester United.

Ten Hag var mættur á Selhurst Park þar sem hann sá Crystal Palace vinna United, 1-0.

Cotterill fór til Hollands í vikunni sem Ten Hag var ráðinn stjóri United og elti hann um Amsterdam.

Ten Hag var augjóslega orðinn þreyttur á honum þá og enn þreyttari núna eftir að Cotterill reyndi að ná tali af honum eftir lokaumferðina í ensku úrvalsdeildinni.

Cotterill spurði Ten Hag hvort hann væri spenntur að byrja hjá United en öryggisvörður stjórans stóð á milli og kom í veg fyrir að Cotterill kæmist að honum.

„Ekki ýta mér, þú ert í sjónvarpinu. Það er ekki gott að láta öryggisvörðinn taka sig föstum tökum, Þú ert hjá Manchester United, þetta er risastórt félag," sagði Cotterill áður en Ten Hag steig inn í bifreið sína.


Athugasemdir
banner
banner
banner