Fotbolti.net
22.06.18 - 11:41
Arnar Daði Arnarsson

Makar Harðar og Gylfa giska á 2-0 sigur og að Gylfi skori bæði

Auglýsing
Móeiður og Alexandra ásamt Jónu Vestfjörð kærustu Hólmars Arnar Eyjólfsonar í stúkunni í Argentínuleiknum.

Móeiður og Alexandra ásamt Jónu Vestfjörð kærustu Hólmars Arnar Eyjólfsonar í stúkunni í Argentínuleiknum.

Canon

Mynd: Getty Images

Icelandair
„Við erum hrikalega spenntar,\" sögðu Móeiður Lárusdóttir og Alexandra Ívarsdóttir við Fótbolta.net í Stalíngrad í dag.
Móeiður er maki Harðar Björgvins Magnússonar og Alexandra maki Gylfa Sigurðssonar. Þær fengu að hitta strákana í skamman tíma í gær.

„Við fórum upp á hótel og hittum þá í mat, það var gott að fá aðeins að sjá þá,\" sagði Alexandra og Móeiður bætti við að þær hafi fengið sér pasta og klúbbsamloku með strákunum.

„Ég bjóst við allt öðru hérna í Rússlandi en þetta kemur á óvart og hefur verið æði,\" sagði Móeiður.

Í lokin giskuðu þær á úrslit leiksins og voru sammála um 2-0 sigur Íslands og að Gylfi skori bæði mörkin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.