Fotbolti.net
22.09.18 - 16:35
Ármann Örn Guðbjörnsson

Ejub Purisevic: Sterkasta 1. deild sem ég hef upplifað

Auglýsing
Ejub Purisevic: Sterkasta 1. deild sem ég hef upplifað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur mætti með sína stráka í Laugardalinn þar sem lið Fram tók á móti þeim í loka umferð Inkasso-deildarinnar. Víkingur Ólafsvík sigraði 2-1 og endar liðið í 4 sæti deildarinnar.
"Þetta var bara eitt besta sumar sem ég hef upplifað eftir að hafa komið hingað. Sérstaklega miðað við hvernig veturinn og vorið var. Bara frábært að vera í toppbaráttu um mitt mót, eina sem situr í manni ennþá er þessi blessaði bikarkeppni"



Víkingar enduðu með 42 stig en það dugði ekki nema fyrir 4 sætið í deildinni. Liðið endaði með sama stigafjölda árið 2012 þegar liðið komst í fyrsta skipti upp í efstu deild. 



"Mér finnst þessi deild mjög sterk. Sjáið bara lið eins og Selfoss með fullt af frábærum leikmönnum eru að falla"



"Við erum í betri málum en í fyrra með leikmannamál og verðum allavega í betri málum í Febrúar en í fyrra"




Viðtalið má sjá í heild sinni í tækinu hér fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.