Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir vöktu verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína í kvöld gegn Svíþjóð þegar íslenska landsliðið gerði jafntefli við það sænska í undankeppni fyrir EM2021.
Í einkunnagjöf Fótbolta.net fær Karólína sjö i einkunn og Sveindís fær átta. Karólína var að leika sinn þriðja A-landsleik og Sveindís sinn annan.
Í einkunnagjöf Fótbolta.net fær Karólína sjö i einkunn og Sveindís fær átta. Karólína var að leika sinn þriðja A-landsleik og Sveindís sinn annan.
Sænskir fjölmiðilinn vn.se fer fögrum orðum um frammistöðu tvemenningiana sem báðar leika með Breiðabliki, Sveindís er þó að láni frá Keflavík. Miðilinn bendir á að þær séu báðar 19 ára gamlar og segir lesendum að leggja nöfnin á minnið.
„Leggið nöfnin á minnið. Þær ollu miklum vandræðum fyrir sænsku vörnina," segir í grein vn.se.
Sjá einnig:
Mjög hrifin af Sveindísi - Hvetur sænsk félög til að fá hana til sín
Sænskir fjölmiðlar um Sveindísi Jane og Karólínu Leu: „Leggið þessi nöfn á minnið." #fótbolti #fótboltinet @footballiceland pic.twitter.com/1sQpHbdkRV
— Höllin er úrelt (@Nyjahollstrax) September 22, 2020
Flott stelpur 👏👏👏. Virkilega góð frammistaða hjá liðinu og öllum í kringum það. En VÁ hvað ég hlakka til þegar Sveindís Jane fattar hvaða hæfileika hún hefur.
— Tómas Ingi Tómasson (@IngiTomasson) September 22, 2020
Athugasemdir