Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. nóvember 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta sending tímabilsins komin
Joao Cancelo.
Joao Cancelo.
Mynd: Getty Images
Portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo fékk mikið hrós fyrir sendingu sem hann átti á Raheem Sterling í fyrsta marki Manchester City gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Robbie Keane, fyrrum sóknarmaður Liverpool og Tottenham, sagði sendingu Cancelo vera bestu sendingu tímabilsins.

„Það mun ekki koma nein betri sending á þessu tímabili," sagði Keane á Sky Sports eftir leikinn.

Jamie Redknapp líkti sendingunni við eitthvað sem Paul Scholes og Luka Modric myndu gera. Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, var að lýsa leiknum og sagði sendinguna „algjörlega fáránlega."

Hægt er að sjá myndband af sendingunni og markinu með því að smella hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner