Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. nóvember 2021 18:42
Brynjar Ingi Erluson
Xavi: Við þurfum að skapa fleiri færi
Mynd: EPA
Xavi, þjálfari Barcelona, var ánægður með 1-0 sigurinn á Espanyol um helgina en segir þó að liðið verði að skapa sér fleiri færi.

Memphis Depay skoraði eina mark Börsunga í leiknum en liðið var heppið að fara með sigur af hólmi.

Þetta var fyrsti leikurinn undir stjórn Xavi en hann telur að liðið geti bætt sig töluvert.

„Það eru hlutir sem við þurfum að bæta og við þurfum að skilja það betur hvernig leikirnir eru að spilast. Við þurfum að skapa okkur fleiri færi því það er erfitt að sækja á svona þéttar varnir og þurfum því að nýta vængina betur," sagði Xavi.

„Ég er hrifnastur af hugarfarinu. Það eru hlutir sem við getum bætt og þeir eru í raun margir," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner