Marco Reus, leikmaður Borussia Dortmund, var verulega pirraður í gær eftir leik liðsins við Borussia Monchengladbach í Bundesligunni.
Dortmund tapaði leiknum 4-2 gegn Gladbach en komst yfir 2-1 í fyrri hálfleik með mörkum frá Erling Haaland.
Reus og félagar eru að missa af toppbaráttunni og eftir 18 leiki er liðið heilum tíu stigum frá toppliði Bayern sem á leik til góða.
Reus var virkilega pirraður eftir leikinn í gær og lét í sér heyra í viðtali við blaðamann.
„Ef við byrjum ekki að snúa þessu við þá verður þetta mjög erfitt," sagði pirraður Reus við ZDF eftir lokaflautið.
„Þetta eru alltaf sömu mistökin sem við erum að gera og það er alveg glatað!"
Athugasemdir