Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 23. janúar 2022 13:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Valdimar seldur til Sogndal
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tore Andre Flo fyrrum leikmaður Chelsea og stjóri Sogndal í dag er að ganga frá öðrum kaupum sínum í janúar. Valdimar Þór Ingimundarson er á leið til liðs við Sogndal frá Strömsgodset.

Valdimar var orðaður við lið hér heima sem og Östersund í Svíþjóð en samkvæmt fjölmiðli í Sogndal er hann genginn til liðs við félagið.

Valdimar sló í gegn í Pepsi Max deildinni með Fylki sumarið 2020 og var seldur til Strömsgodset. Hann byrjaði þá 8 leiki af 13 fyrir norska liðið en byrjaði aðeins fjóra leiki á síðasta tímabili.

Jostein Flo yfirmaður hjá Strömsgodset staðfesti fyrr í þessum mánuði að Valdimar væri á förum frá félaginu.

Hann mun vera kynntur sem leikmaður Sogndal í vikunni en hann er í einangrun á Íslandi. Hann hittir þar fyrir Hörð Inga Gunnarsson sem skrifaði undir í síðustu viku. Emil Pálsson lék með liðinu síðari hluta síðasta tímabils.

Valdimar og Hörður voru samherjar í u21 landsliðinu sem lék á lokakeppni EM í fyrra. Valdimar lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Úganda á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner