Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 23. janúar 2023 11:00
Elvar Geir Magnússon
Foden gæti misst af bikarleiknum gegn Arsenal
Phil Foden.
Phil Foden.
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden gæti misst af bikarleik Manchester City gegn Arsenal, sem fram fer á föstudagskvöld, vegna meiðsla.

Foden hefur bara byrjað þrjá úrvalsdeildarleiki síðan um miðjan október en hann varð fyrir meiðslum í fæti í 2-1 tapi gegn Manchester United þann 14. janúar.

Hann hefur ekki verið með City í síðustu tveimur leikjum og var í stúkunni þegar liðið vann Wolves í gær.

Það má búast við stórskemmtilegum leik á föstudag, City og Arsenal eru að berjast um enska meistaratitilinn. Erling Haaland skoraði þrennu í 3-0 sigri City gegn Wolves í gær og Arsenal mætir á Etihad með fullt sjálfstraust eftir 3-2 sigur gegn Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner