Fotbolti.net
23.02.20 - 13:41
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalska deildin

Ítalía: Lazio stigi á eftir Juventus eftir sigur

 Immobile skoraði annað mark Lazio.

Immobile skoraði annað mark Lazio.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Genoa 2 - 3 Lazio</b>
0-1 Adam Marusic ('2 )
0-2 Ciro Immobile ('51 )
1-2 Francesco Cassata ('57 )
1-3 Danilo Cataldi ('71 )
2-3 Domenico Criscito ('90 , víti)
Tveir leikir fara fram í ítölsku úrvalsdeildinni í dag, upphaflega áttu þeir að vera sex en fjórum þeirra var frestað vegna kóróna veirunnar. Nú er ný lokið fyrri leik dagsins, þar mættust Genoa og Lazio.

Gestirnir í Lazio voru með forystuna í hálfleik eftir að Adam Marusic kom boltanum í netið á 2. mínútu. Boðið var upp á meira fjör í seinni hálfleik.

Ciro Immobile skoraði annað mark Lazio í upphafi seinni hálfleiks. En næst var röðin komin að heimamönnum að skora, Francesco Cassata minnkaði muninn sex mínútum eftir annað mark gestanna.

Lazio náði aftur tveggja marka forystu á 71. mínútu þegar Danilo Cataldi skoraði. Staðan orðin 1-3 en heimamönnum tókst að minnka muninn á 90. mínútu þegar Domenico Criscito skoraði úr vítaspyrnu.

Niðurstaðan 2-3 sigur Lazio sem er nú aðeins einu stigi á eftir toppliði Juventus. Genoa situr áfram í fallsæti.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.