Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. mars 2021 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mynd: Ísak fékk sér köku - „Ætla giska að hann hafi laumast í hana"
Icelandair
Mynd: RÚV
„Nei, engin kaka eða slíkt. Það er leikur á fimmtudaginn!" sagði Ísak Bergmann Jóhannesson, afmælisbarn dagsins við Fótbolta.net í dag.

Ísak fagnar í dag átján ára afmælisdegi sínum með U21 árs landsliðinu í Györ. Liðið undirbýr sig fyrir fyrsta leik á Evrópumótinu sem er gegn Rússum á fimmtudag.

KSÍ kom aftan að Ísaki og bauð upp á kökur eftir seinni æfingu íslenska liðsins í dag.

Það er óumdeilanlegt, ef horft er á myndina, að Ísak er að fá sér köku á diskinn sinn en einhverjar sögur eru um að hann hafi ekki bragðað á kökunni.

„Heyrðu ég var ekki á augnablikinu þegar myndin var tekin. Ég ætla bara að giska að hann hafi laumast í hana."

Sagði Davíð Snorri Jónasson, þjálfari liðsins, í viðtali í kvöld.


Davíð hefur ekki áhyggjur af því að það sé rússneskur njósnari í hópnum
Athugasemdir
banner
banner
banner