Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 23. mars 2023 19:05
Brynjar Ingi Erluson
Glódís í liði vikunnar
Glódís átti stórleik gegn Arsenal
Glódís átti stórleik gegn Arsenal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, er í liði vikunnar hjá Sofa Score, eftir 1-0 sigurinn á Arsenal í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Framlag hennar í sigrinum á Arsenal var ómetanlegt. Enska liðið er eitt það allra besta í Evrópu en Bayern tókst að leggja liðið að velli í Þýskalandi.

Glódís var með bestu leikmönnum Bayern í leiknum og hefur hún nú verið valin í lið vikunnar hjá Sofa Score.

Hún fær einkunnina 8,4 og er því með þriðju hæstu einkunn af öllum leikmönnunum sem eru í liði vikunnar.

Georgia Stanway og Lea Schüller, liðsfélagar Glódísar, eru einnig í liði vikunnar. Síðari leikurinn er þann 29. mars á heimavelli Arsenal.


Athugasemdir
banner
banner