Lið vikunnar í enska - Welbeck sá um Liverpool

Markvörður: Jordan Pickford (Everton) - Ein af lykilstundunum í 3-0 sigrinum gegn Chelsea var markvarsla hans gegn Enzo Fernandez.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Neco Williams (Nottingham Forest) - Tvær stoðsendingar í sigrinum gegn Tottenham.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Maty Cash (Aston Villa) - Góður bæði varnar- og sóknarlega í sigrinum gegn West Ham.

Mynd: EPA

Varnarmaður: James Tarkowski (Everton) - Öryggið uppmálað, enn og aftur.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Chris Rigg (Sunderland) - Öflugur sigur hjá Sunderland í erkifjendaslagnum gegn Newcastle.

Mynd: EPA

Miðjumaður: James Garner (Everton) - Fagnaði landsliðssæti með stoðsendingu og frábærri frammistöðu gegn Chelsea.

Mynd: EPA

Miðjumaður: John McGinn (Aston Villa) - Skoraði flott mark gegn West Ham. Er hjartslátturinn í þessu Villa liði.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Hary Wilson (Fulham) - Skoraði í sigri gegn Burnley.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Bruno Fernandes (Manchester United) - Skoraði og átti stóran þátt í hinu markinu í 2-2 jafntefli gegn Bournemouth.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Beto (Everton) - Skoraði tvö í sigrinum gegn Chelsea. Vaknaður eftir að hafa verið slakur fyrri hluta tímabils.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Danny Welbeck (Brighton) - Skoraði bæði mörk Brighton í 2-1 sigri gegn Liverpool

Mynd: EPA

Stjórinn: David Moyes (Everton) - Gamli skólinn vann nýja skólann.

Mynd: EPA


Mynd: BBC


