Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 23. apríl 2021 22:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi sýndi mikla íþróttamennsku og virðingu
Mynd: EPA
Gylfi Þór Sigurðsson sýndi mikla íþróttamennsku eftir sigur Everton á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Stjörnublaðamaðurinn Henry Winter greinir frá þessu á samfélagsmiðlinum Twitter.

Winter segir að Gylfi hafi farið beint til Bernd Leno, markvarðar Arsenal, eftir leikinn og hughreyst hann.

Leno var miður sín eftir að hann gaf Everton sigurmarkið. Hann gerði slæm mistök.

Everton er í áttunda sæti, sex stigum á undan Arsenal sem er í níunda sæti. Everton á leik til góða á Arsenal og er aðeins þremur stigum frá Meistaradeildarsæti.

Sjá einnig:
Töldu Gylfa vera með betri mönnum vallarins


Athugasemdir
banner