Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 23. maí 2022 11:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gibbs á leið í læknisskoðun og Rúnar í aðgerð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Joey Gibbs var ekki í leikmannahópi Keflavíkur í þriðja leiknum í röð þega Keflavík mætti FH og vann sigur í gær.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, var til viðtals eftir leikinn og var hann spurður út í Gibbs.

„Joey hefur spilað svolítið meiddur í sumar, verið stífur aftan í læri og við ætlum að láta lækni skoða hann. Hann gat ekki beitt sér nóg til að vera með í dag en Patrik [Johannessen] steig upp og spilaði frábærlega frammi. Hann var stórhættulegur og náði að tengja vel spil. Það kemur alltaf maður í manns stað," sagði Siggi Raggi.

Í gær tók Rúnar Þór Sigurgeirsson út leikbann vegna fjölda gulra spjalda. Rúnar hefur spilað kviðslitinn í upphafi móts en er á leið í aðgerð á morgun.

Ef allt gengur eftir verður hann mættur á völlinn aftur í byrjun júlí.
Siggi Raggi: Núna fengum við þetta allt saman frammistöðu og úrslitin
Athugasemdir
banner
banner