Fotbolti.net
23.07.22 - 17:11
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeild kvenna: Linli Tu með tvennu í þægilegum sigri

Lengjudeild kvenna: Linli Tu með tvennu í þægilegum sigri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Fjarðab/Höttur/Leiknir 3 - 1 Augnablik
1-0 Linli Tu ('19 )
2-0 Linli Tu ('33 )
3-0 Björg Gunnlaugsdóttir ('65 )
3-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('92 , Mark úr víti)

Sameinað lið Austfirðinga tók á móti efnilegum Kópavogsstúlkum í eina leik dagsins í Lengjudeild kvenna.

Linli Tu hefur verið algjör lykilmaður frá komu sinni á Austfirði og skoraði hún fyrstu tvö mörk leiksins í fyrri hálfleik.

Björg Gunnlaugsdóttir gerði út um viðureignina með þriðja marki heimakvenna í seinni hálfleik og náði Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir að minnka muninn með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. er í fjórða sæti með 21 stig eftir 11 umferðir, fjórum stigum eftir HK sem situr í öðru sæti.

Augnablik er með níu stig, fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Lengjudeild kvenna: Linli Tu með tvennu í þægilegum sigri
Canon

Mynd: Crossroads League

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.