Dr. Karl Steptoe, yfirsálfræðingur akademíu Leicester City heldur erindi á súpufundi KSÍ klukkan 12.00 þann 28. ágúst í höfuðstöðvum KSÍ.
Hann starfar jafnframt á íþróttasálfræðisviði Lougborough University.
Hann starfar jafnframt á íþróttasálfræðisviði Lougborough University.
Karl mun ræða um starf sitt og reynslu sem íþróttasálfræðingur hjá akademíu í ensku úrvalsdeildarliði. Hann ræðir um hlutverk íþróttasálfræðingsins, hvernig hann getur gagnast félaginu og hvaða áskoranir hann þarf að takast á við.
Fundurinn veitir tvo tíma í endurmenntun á KSÍ þjálfaragráðum.
Frítt er á viðburðinn og súpa og brauð í boði KSÍ
Hægt er að finna tengil á skráningu hérna.
Athugasemdir