Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. janúar 2020 22:02
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Osasuna hafði betur gegn Levante
Mynd: Getty Images
Osasuna 2 - 0 Levante
1-0 Ruben Garcia ('81, víti)
2-0 Inigo Perez ('84)

Nýliðar Osasuna fengu Levante í heimsókn í fyrsta leik helgarinnar í spænska boltanum og var staðan markalaus eftir fyrri hálfleik, þrátt fyrir yfirburði heimamanna.

Yfirburðirnir héldu áfram eftir leikhlé en mörkin virtust ætla að standa á sér, þar til Ruben Garcia skoraði úr vítaspyrnu á 81. mínútu. Inigo Perez innsiglaði sigurinn þremur mínútum síðar og lokatölur urðu 2-0.

Osasuna er um miðja deild, þremur stigum frá Evrópusæti með 28 stig eftir 21 umferð. Þetta var þriðja tap Levante í röð og er liðið með 26 stig.
Athugasemdir
banner