Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 24. janúar 2021 19:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Annar 3-0 sigur Hoffenheim í röð
Hoffenheim fagnar marki.
Hoffenheim fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Hoffenheim 3 - 0 Koln
1-0 Andrej Kramaric ('7 , víti)
2-0 Christoph Baumgartner ('28 )
3-0 Andrej Kramaric ('75 , víti)
3-0 Anthony Modeste ('78 , Misnotað víti)

Hoffenheim vann góðan heimasigur gegn Köln í seinni leik dagsins í deild þeirra bestu í Þýskalandi.

Króatíski sóknarmaðurinn Andrej Kramaric kom Hoffenheim yfir úr vítaspyrnu strax á sjöundu mínútu. Um miðbik fyrri hálfleiks bætti Austurríkismaðurinn Christoph Baumgartner við öðru marki.

Kramaric skoraði síðan annað mark sitt þegar stundarfjórðungur var eftir. Aftur skoraði hann af vítapunktinum. Anthony Modeste hefði getað minnkað muninn á 78. mínútu en honum tókst ekki að skora af vítapunktinum.

Lokatölur 3-0 fyrir Hoffenheim og er þetta annar leikurinn í röð sem liðið vinnur með þessari markatölu. Hoffenheim vann einnig Herthu Berlín 3-0 í síðustu viku. Hoffenheim er í 11. sæti og Köln í 16. sæti.

Önnur úrslit í dag:
Þýskaland: 46 marktilraunir er Bayern lagði Schalke
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner