Það var sorglegur atburður í kvöld þegar margir stuðningsmenn urðu undir í troðningi fyrir utan Paul Biya leikvanginn fyrir leik Kamerún og Kómoreyja á Afríkumótinu í kvöld.
Yfirvöld hafa staðfest að allt að fjörutíu manns hafi þurft að leggjast inná spítala og þar á meðal börn og að minnsta kosti sex hafa látist.
Þrátt fyrir þetta hófst leikurinn á réttum tíma.
Heimamenn í Kamerún fara í 8 liða úrslit eftir sigur í leiknum en vinstri bakvörður var í marki Kómoreyja vegna covid smita og þeir voru manni færri frá sjöundu mínútu.
Athugasemdir