Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 24. janúar 2022 20:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stórkostlegar vörslur hjá bakverði Kómoreyja
Úr leik Gana og Kómoreyja í riðlakeppninni.
Úr leik Gana og Kómoreyja í riðlakeppninni.
Mynd: Getty Images
Heimamenn í Kamerún og Kómoreyjar eigast nú við í 16 liða úrslitum Afríkukeppninnar. Kamerún er tveimur mörkum yfir þegar 15 mínútur eru eftir af leiknum.

Þá er staðan enn verri fyrir Kómoreyjar þar sem þeir hafa verið manni færri frá 7. mínútu eftir að Nadji Abdou var rekinn af velli.

Vinstri bakvörðurinn Chakher Alhadhur er að spila sinn fyrsta leik á mótinu fyrir Kómoreyjar en hann er í markinu. Það er enginn markvörður leikfær og þarf þá útileikmaður að vera á milli stanganna.

Það hefur ekki verið mjög mikið að gera hjá Alhadhur en hann hefur þó nú fengið á sig tvö mörk. Hann átti þó frábæra takta í upphafi síðari hálfleiks þegar hann varði tvívegis frá leikmönnum Kamerún.

Markvörslurnar má sjá með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner