Fotbolti.net
24.01.25 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stuðningsmenn Celtic geta aftur sungið lagið um Jota

Jota.

Jota.

Canon

Mynd: EPA

Eitt besta stuðningsmannalag í fótboltanum er lagið sem stuðningsmenn Celtic sungu um portúgalska fótboltamanninn Jota.

Nú geta stuðningsmenn skoska félagsins sungið það aftur.
Jota er á leiðinni aftur til Celtic eftir að hafa leikið í Sádi-Arabíu og Frakklandi síðustu árin.

Hann fór frá Celtic árið 2023 til Al-Ittihad í Sádi-Arabíu en hann fann sig ekki þar og fór hann til Rennes í Frakklandi í fyrra. Þar hefur hann skorað eitt mark í tíu leikjum á yfirstandandi tímabili.

Núna er hann aftur að ganga í raðir Celtic og stuðningsmenn liðsins munu því syngja aftur þetta frábæra lag:

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.