Fotbolti.net
24.03.25 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Boltastrákur er þjóðhetja eftir sigur Þýskalands í gær

Boltastrákur er þjóðhetja eftir sigur Þýskalands í gær
Canon

Mynd: EPA

Þýskaland er komið áfram í undanúrslit Þjóðadeildarinnar eftir að hafa slegið Ítalíu út í 8-liða úrslitum.
Þýskaland vann fyrri leikinn 2-1 á Ítalíu en leikurinn í Þýskalandi endaði með 3-3 jafntefli í gær.

Þýskaland náði 3-0 forystu í hálfleik en tvö mörk frá Moise Kean og mark frá Giacomo Raspadori úr vítaspyrnu urðu til þess að leiknum lauk með 3-3 jafntefli, samanlagt 5-4 fyrir Þýskalandi.

Noel Urbaniak, 15 ára boltastrákur, er þjóðhetja í Þýskalandi eftir þátt sinn í leiknum í gær. Í stöðunni 1-0 fékk Þýskaland hornspyrnu og Urbaniak lét Joshua Kiimmich hafa boltann á meðan leikmenn Ítalíu voru að rífast við dómarann.

Jamal Musiala var einn og óvaldaður inn á teignum og kom Þýskalandi í 2-0.

Kimmich áritaði bolta fyrir hann eftir leikinn og þá fékk hann þýska landsliðstreyju að launum. Urbaniak sagði sjálfur frá því að hann hafi fengið marga fylgjendur á TikTok í kjölfar leiksins og hann hafi eytt mörgum klukkutímum í símanum við félaga sína eftir leikinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.