Ægir Jarl Jónasson hefur samið við Fram og gengur til liðs við félagið frá danska liðinu AB. Óvíst er þó hvenær hann kemur til landsins en samningur hans við AB rennur út 30. júní.
Möguleiki er á að félögin nái saman um greiðslu svo að Ægir gangi til liðs við Fram áður en Besta deildin hefst. Takist það ekki verður hann áfram hjá AB út samninginn og kemur í Úlfarsárdal í júlíglugganum.
Félagaskiptaglugginn lokar 29. apríl og opnar aftur 16. júlí.
Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson eftir dráttinn í Mjólkurbikarnum fyrr í dag og spurði hann út í stöðuna á Ægi.

„Staðan er sú að við erum að reyna að semja við AB. Eins og er í þessum bransa þá þarf tvo til, það þurfa báðir að vera samþykkir. Við þurfum að finna lausnir með þeim. Við erum bjartsýnir núna á að þetta geti gengið upp og að hann geti komið áður en að mótið hefst.
Hann er reyndar tæpur á meiðslum í dag og þarf tíu daga í að verða heill. Þannig við þurfum að sjá til, hann verður ekki klár í fyrsta leik. Vonandi skýrist þetta í lok þessarar viku eða byrjun næstu viku.“
Ægir er 27 ára miðjumaður og gekk hann til liðs við AB frá KR fyrir tæpum tveimur árum. Hann hefur spilað sextán leiki fyrir danska félagið á tímabilinu sem er á toppi C-deildarinnar.
Athugasemdir