Fotbolti.net
24.04.23 - 10:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Minnti frekar á bumbubolta en Bestu deild á Íslandi"

Frá vellinum í Vestmannaeyjum í gær.

Frá vellinum í Vestmannaeyjum í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Breiðablik tapaði sínum öðrum deildarleik í gær þegar liðið heimsótti ÍBV í Vestmannaeyjum. Þetta var fyrsti grasleikurinn sem Blikar spila í sumar en aðstæður voru ekki alveg eins og best er á kosið.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 1 Breiðablik
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Blika, gagnrýndi aðstæðurnar ekki í viðtali eftir leikinn. „Ég ætla ekki að tjá mig um aðstæðurnar... Þetta eru erfiðar og krefjandi aðstæður sem við vissum og kom okkur ekkert á óvart."

Á vefmiðlinum Blikar.is, stuðningsmannasíðu Breiðabliks, voru aðstæðurnar hins vegar gagnrýndar harðlega.

„Það var margt í gangi á Hásteinsvelli í dag sem minnti frekar á bumbubolta en Bestu deild á Íslandi. Þá er ég fyrst og síðast að tala um vallaraðstæður, umgjörð og fleira en svona er bara staðan," segir í grein miðilsins og er haldið áfram:

„Breiðablik fór á þennan völl í fyrra og gerði 0-0 jafntefli og völlurinn var litlu skárri þar sem ekki var búið að slá eða vökva völlinn. Við eigum að vera vön þessu veseni en vallaraðstæður í dag voru með því verra sem maður hefur séð í dágóðan tíma í efstu deild."

Ríkjandi Íslandsmeistarar Breiðabliks eru með þrjú stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar, sem er ekki það sem liðið ætlaði sér.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.