Aston Villa íhugar að fá De Bruyne - Stórliðin á eftir argentínsku ungstirni - Verður Farke rekinn?
   fim 24. apríl 2025 22:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Birmingham komið með rúmlega hundrað stig
Mynd: Birmingham City
Birmingham hefur verið með gríðarlega yfirburði í C-deildinni á Englandi á tímabilinu.

Liðið lagði Stevenage 1-0 í kvöld og er komið með 102 stig þegar níu stig eru eftir í pottinum. Liðinu vantar aðeins fjögur stig til að jafna metið yfir flest stig í enskri deildakeppni en Reading nældi í 106 stig tímabilið 2005/06.

Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður í kvöld en Alfons Sampsted var ekki í leikmannahópnum.

Liðið tryggði sér titilinn þegar sex umferðir voru eftir. Liðið gat unnið neðdri deildabikarinn stuttu síðar en tapaði gegn Peterborough í úrslitum.


Athugasemdir
banner