Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 24. maí 2020 14:20
Ívan Guðjón Baldursson
Mkhitaryan vill vera áfram í Róm
Armenski framherjinn Henrikh Mkhitaryan vill vera áfram hjá Roma eftir að lánssamningur hans við félagið rennur út.

Mkhitaryan hefur verið að glíma við meiðsli en þótt standa sig afar vel þegar hann heill. Ítalski boltinn virðist henta honum afar vel og segist hann njóta sín.

Mkhitaryan hefur hins vegar ekki notið sín í enska boltanum þar sem honum hefur mistekist að láta ljós sitt skína bæði hjá Manchester United og Arsenal. Hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal.

„Mér leið vel frá fyrsta degi í Róm. Þetta er frábær leikmannahópur og æðisleg borg. Það væri frábært að geta verið hérna áfram og reynt að berjast um titla," sagði Mkhitaryan í viðtali við ítalska sendiráðið í Armeníu.

„Það er ótrúlegt að spila fyrir þessa stuðningsmenn. Ég hafði heyrt að stuðningsmenn á Ítalíu væru klikkaðir en ég hafði aldrei ímyndað mér neitt þessu líkt.

„Ég hef afrekað miklu á ferlinum en það er allt partur af fortíðinni. Ég á ekki mörg ár eftir í atvinnumennsku og ætla að gera mitt allra besta til að ná mínum persónulegu markmiðum."


Ólíklegt er að Roma geti keypt hinn 31 árs gamla Mkhitaryan í sumar þar sem félagið á í miklum fjárhagsörðugleikum og gæti neyðst til að selja sín helstu ungstirni þegar félagaskiptaglugginn opnar.
Athugasemdir
banner