Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 24. maí 2022 22:17
Brynjar Ingi Erluson
Bellerin vill ekki snúa aftur til Arsenal - „Höfum tvo mánuði til að finna bestu lausnina"
Hector Bellerin er ánægður hjá Betis
Hector Bellerin er ánægður hjá Betis
Mynd: Getty Images
Spænski hægri bakvörðurinn Hector Bellerin hefur engan áhuga á því að snúa aftur til Arsenal í sumar.

Bellerin gekk í raðir Real Betis á láni frá Arsenal fyrir tímabilið og vann spænska konungsbikarinn með liðinu en lánssamningur hans klárast í næsta mánuði.

Eftir það á hann að snú aftur á æingar hjá Arsenal en hann hefur greint enska félaginu frá því að hann hafi ekki áhuga á að snúa aftur til Lundúnarliðsins.

„Ég er mjög skýr varðandi stöðu mína, bæði gagnvart Betis og Arsenal. Ég vil vera áfram hjá Betis."

„Við höfum núna tvo mánuði til að finna bestu lausnina. Ég lagði mikið á mig til að koma hingað og mun gera allt til þess að vera áfram,"
sagði Bellerin.
Athugasemdir
banner