Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. júlí 2020 09:10
Magnús Már Einarsson
Henderson valinn leikmaður tímabilsins á Englandi
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, hefur verið kjörinn leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni í val blaðamanna.

Kevin De Bruyne, leikmaður Manchester City, þótti einnig líklegur til að fá verðlaunin en Henderson fékk fleiri atkvæði.

Henderson hjálpaði Liverpool að landa enska meistaratitlinum í fyrsta skipti í 30 ár.

De Bruyne, Marcus Rashford, Virgil van Dijk og Sadio Mane komu í næstu sætum á eftir Henderson í valinu.

Fimmtán leikmenn fengu atkvæði í valinu en auk Henderson, Van Dijk og Mane fengu Trent Alexander-Arnold og Alisson Becker atkvæði úr meistaraliði Liverpool.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner