Fotbolti.net
24.07.22 - 17:23
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu fyrsta mark Daníels Leó í Póllandi

Daníel Leó er búinn að opna markareikninginn í Póllandi

Daníel Leó er búinn að opna markareikninginn í Póllandi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Daníel Leó Grétarsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir pólska félagið Slask Wroclaw í annarri umferð deildarinnar í dag.
Daníel, sem gekk til liðs við Slask Wroclaw frá Blackpool í byrjun ársins, missti mikið úr vegna meiðsla seinni hluta leiktíðarinnar og spilaði aðeins fjóra leiki í pólsku deildinni.

Nú er hann laus við öll meiðsli og var að leika annan deildarleik sinn á þessu tímabili og gerði um leið fyrsta mark sitt fyrir Wroclaw og kom liðinu í 2-1 gegn KR-bönunum í Pogon Szczecin.

Það gerði hann með skalla eftir fyrirgjöf frá vinstri en markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.