Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 24. september 2020 10:35
Magnús Már Einarsson
Ryan Reynolds og Rob McElhenney vilja kaupa Wrexham
Ryan Reynolds
Ryan Reynolds
Mynd: Chelsea
Hollywood leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney eru að reyna að kaupa Wrexham sem spilar í fimmtu efstu deild á Englandi.

Reynolds var í aðalhlutverki í Deadpool á meðan McElhenney hefur leikið í þáttunum It's Always Sunny in Philadelphia.

Wrexham hefur verið í eigu stuðningsmanna síðan árið 2011.

97,5% stuðningsmanna eru fylgjandi því að fara í viðræður við Reynolds og McElhenney um kaup á félaginu.

Viðræður standa yfir en stuðningsmennirnir vonast til að Hollwyood stjörnurnar geti komið með fjármagn inn í félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner